26. febrúar 2008 10:14
Vísitala neysluverðs í febrúar hækkaði um 1,38% frá fyrra mánuði og er því er 286,2 stig. Síðastliðna tólf mánuði (miðað við verðlag í upphafi mánaðar í fyrra en um miðjan mánuð nú) hefur vísitalan hækkað um 6,8%.
Hækkun vísitölunnar nú er meiri en almennt var búist við. Þeir liðir sem vega þyngst í hækkuninni eru kostnaður vegna eigin bifreiðar (nýjar bifreiðar og eldsneyti) sem jókst um 2,5% og verð á fötum og skóm sem hækkaði um 9,1%. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði einnig talsvert eða um 0,9%. Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1%en innan þess liðar hafði hækkun vaxta mun meiri áhrif til hækkunar vísitölunnar en markaðsverð húsnæðis.
Samkvæmt fastskattavísitölu neysluverðs, sem lýsir breytingum á vísitölu neysluverðs hefði ekki komið til breytinga á virðisaukaskatti hinn 1. mars á síðasta ári, mælist verðbólga nú 8,7%.

Til baka