Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
12. desember 2007 09:49

Verðbólgan 5,9% í desember

Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,68% milli mánaða og er ársverðbólgan því nú 5,9%. Það vekur athygli að jafnvel þó húsnæðisliðnum sé slept þá er hækkunin milli mánaða sú sama.

Þeir liðir sem höfðu hvað mest áhrif til hækkunar eru kotnaður vegna eigin bifreiðar, en verð bæði á eldsneyti og bifreiðum hækkar verulega milli mánaða. Matur og drykkjarvörur hafa einnig talsverð áhrif til hækkunar, einkum kjöt, kornvörur og ávextir. Í húsnæðisliðnum eru það einkum hærri vextir sem eru að lyfta vísitölunni en síður hækkun markaðsvirðis húsnæðis.

Samkvæmt fastskattavísitölu neysluverðs, sem lýsir breytingum á vísitölu neysluverðs hefði ekki komið til breytinga á virðisaukaskatti hinn 1. mars sl., mælist verðbólga nú 7,7 sem gefur til kynna að undirliggjandi verðbólga er mikil.

Tengdar fréttir
Tengd tölfræði



Til baka


Jafnrétti til launa

Atvinnurekendum ber samkvæmt lögum skylda til að greiða...