12. nóvember 2007 10:05
Samkvæmt frétt Hagstofu Íslands hækkaði vísitala neysluverðs um 0,65% milli mánaða og er ársverðbólgan því nú 5,2%. Það veldur nokkrum áhyggjum hversu margir liðir vísitölunnar hækka að þessu sinni, þ.e. neysluvörur og -þjónusta almennt eru að hækka verulega í verði.
Þeir liðir sem höfðu hvað mest áhrif til hækkunar eru kostnaður vegna eigin húsnæðis og verð á bensíni og díselolíu. Margir aðrir liðir hækkuðu einnig talsvert milli mánaða svo sem eins og varahlutir í bíla, flugfargjöld og skófatnaður. Matvörur lækkuðu hins vegar lítillega í verði, sérstaklega ávextir og grænmeti.
Samkvæmt fastskattavísitölu neysluverðs, sem lýsir breytingum á vísitölu neysluverðs hefði ekki komið til breytinga á virðisaukaskatti hinn 1. mars sl., mælist verðbólga nú 7% sem gefur til kynna að undirliggjandi verðbólga er mikil.

Til baka