05. nóvember 2009 08:56
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að lækka stýrivexti um 1 prósentustig, úr 12% í 11%. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segist fagna ákvörðuninni þó ljóst sé að Alþýðusambandið vilji sjá enn meiri lækkun stýrivaxta á komandi mánuðum.
"Afstaða Alþýðusambandsins er skýr, hvorki heimili né fyrirtæki standa undir þessum háu vöxtum og því viljum við lægri stýrivexti," segir Gylfi. "Vextirnir hafa hins vegar verið óbreyttir síðan í júní og því er það mikið fagnaðarefni að vaxtalækkunarferlið sé komið í gang að nýju. Nú er mikilvægt að stjórnvöld skapi enn frekari forsendur fyrir lækkun vaxta þannig að markmið okkar um vaxtamun gagnvart evrusvæðinu náist sem fyrst. Ef þetta er sett í samhengi við tilslökun á gjaldeyrishöftunum er ljóst að við erum á réttri leið," sagði Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.
Til baka