Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
23. október 2009 16:44

Ályktun ársfundar ASÍ 2009 um efnahags- og kjaramál

Ályktun ársfundar ASÍ 2009 um efnahags- og kjaramál

Ársfundur ASÍ telur mikilvægt að kjarasamningar haldi gildi sínu þannig að þær kjarabætur sem að óbreyttu eiga að koma til framkvæmda 1. nóvember 2009 og 1. júní 2010 skili sér til launafólks. Ársfundurinn minnir á að fjöldi launamanna hefur ekki fengið launahækkanir síðan 2007 og staða þeirra tekjulægstu er óviðunandi.

Ársfundurinn bendir á að aukin verðmætasköpun er eina færa leiðin út úr efnahagsvandanum. Verkalýðshreyfingin undirritaði Stöðugleikasáttmála í sumar sem hafði það markmið að stuðla að endurreisn efnahagslífsins með því að skapa skilyrði fyrir aukinni fjárfestingu, nýrri sókn í atvinnumálum, auknum hagvexti og leggja þannig grunn að bættum lífskjörum til framtíðar.

Ársfundurinn krefst þess að ríkisstjórnin beiti sér af fullum þunga fyrir framgangi sáttmálans og standi við gefin fyrirheit. Fundurinn lýsir yfir miklum vonbrigðum með vanefndir ríkisstjórnarinnar og telur það með öllu óásættanlegt að ráðherrar ríkisstjórnarinnar fari gegn sáttmálanum eins og umhverfisráðherra gerði með nýlegri ákvörðun sinni um Suðvestur-línu og komi þannig fjárfestingum og nýsköpun í frekara uppnám.

Ársfundurinn lýsir yfir áhyggjum sínum af áformuðum skattahækkunum á heimili og fyrirtæki. Fundurinn telur mikilvægt að umfang skattahækkana verði ekki meira en kveðið er á um í Stöðugleikasáttmálanum. Þá krefst fundurinn þess að staða þeirra tekjulægstu verði varin og að umsamin hækkun persónuafsláttar komi til framkvæmda. Auk þess telur fundurinn mikilvægt að þess verði gætt að áform um orku- og auðlindagjöld verði útfærð með þeim hætti að áformum um fjárfestingar verði ekki stefnt í voða.

Stöðugleikasáttmálinn er öflugt tæki við uppbyggingu samfélagsins og það yrðu mikil vonbrigði ef okkur tækist ekki að nýta þau tækifæri sem í honum felast betur. Ársfundurinn varar við því að ef kjarasamningar fara í sundur nú um mánaðamótin eru forsendur Stöðugleikasáttmálans brostnar og ófriður skapast á vinnumarkaði. Því mun verkalýðshreyfingin mæta sem órofa heild.

Til baka


Fyrirtækjasamningur

er kjarasamningur sem gerður er á milli tiltekins fyrirtækis...