28. september 2009 13:52

Verðlag hækkaði um 0,78% í september og hefur á síðustu 12 mánuðum hækkað um 10,8% að því er fram kemur í nýrri mælingu Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Sé húsnæði undanskilið úr vísitölunni mælist hækkunin undanfarið ár 15,7%. Verðbólga gengur hægar niður en vonir stóðu til fyrr á árinu en gera má ráð fyrir hraðari lækkun á næstu mánuðum. Gengi krónunnar hefur á síðustu vikum verið nokkuð stöðugt auk þess sem minnkandi eftirspurn ætti að halda aftur af frekari verðhækkunum á vörum og þjónustu.
Hækkanir á fötum og skóm hafa mest áhrif til hækkunar á vísitölunni milli ágúst- og septembermánaðar auk hækkana á dagvörum og kostnaði vegna eigin húsnæðis en lækkun á bensíni og flugfargjöldum vegur á móti.
Hækkun á verðlagi í september skýrist að mestu af hækkun á fötum og skóm sem hækka í verði um 6,2% frá fyrra mánuði og valda 0,35% hækkun vísitölunnar. Mat- og drykkjarvörur hækka um 1,6% frá því í ágúst og hafa áhrif til hækkunar á vísitölunni um 0,23%. Ætla má að hluta af hækkun á mat- og drykkjarvörum sé til komin vegna vörugjalda sem lögð voru á ýmiss matvæli ss. sætindi og drykkjarvörur um síðustu mánaðarmót. Af einstaka matvöruliðum hækka gos, safar og vatn um 7,4%, grænmeti um 3,9%,sykur, súkkulaði og sætindi um 3,5% og brauð og kornvörur um 2% frá því í ágúst.
Á síðustu 12 mánuðum hefur verð á mat- og drykkjarvörum hækkað um ríflega 16% samkvæmt vísitölu neysluverðs. Þar af hefur verð á innfluttum mat- og drykkjarvörum hækkað um tæp 30%, búvörur um ríflega 10%, grænmeti um tæp 7% og aðrar innlendar vörur um ríflega 16%.
Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 0,8% milli mánaða vegna hækkunar á markaðsverði húsnæði en á móti þeirri hækkun vegur lækkun raunvaxta. Undanfarið ár hefur kostnaður vegna eigin húsnæðis í vísitölu neysluverðs lækkað um ríflega 13%, aðallega vegna lækkunar á markaðsverði húsnæðis.
Á móti hækkuninni nú vegur lækkun á verði á bensíni og díselolíu sem lækka um 2,8% frá fyrra mánuði og hafa áhrif til lækkunar á vísitölunni um 0,15%. Þá lækkar verð á flugfargjöldum til útlanda um 12,7% sem hefur 0,12% áhrif til lækkunar á vísitölunni. Þá má einnig nefna að verð á gistingu lækkar um 9,8% frá því í ágúst og hefur áhrif til lækkunar á vísitölunni um 0,04%.
Til baka