24. september 2009 10:23
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað í morgun að halda stýrivöxtum óbreyttum í 12%. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ segir þessa ákvörðun vonbrigði en ekki koma á óvart. „Þetta þýðir að mikilvægt ákvæði Stöðugleikasáttmálans nær ekki fram að ganga og þessu stigi er óljóst hverjar afleiðingarnar verða. Okkar vonir stóðu til þess að Seðlabankinn færi með stýrivextina niður fyrir 10%.
Þessi niðurstaða gerir það hins vegar að verkum, að óbreyttu, að SA getur sagt sig frá kjarasamningunum þegar þeir verða endurskoðaðir í lok október,“ segir Gylfi. Hann segir aðila vinnumarkaðarins á fundi með stjórnvöldum í gær hafa kallað eftir svörum hvað ríkisstjórnin hygðist gera ef vextir yrðu ekki lækkaðir í dag. „Við fengum í sjálfu sér engin svör en nú standa spjótin á ríkisstjórninni, það er hennar að koma með úrræði svo Stöðuleikasáttmálinn og kjarasamningar haldi,“ segir forseti Alþýðusambandsins.
Til baka