28. ágúst 2009 09:10

Verðlag hækkaði um 0,52% í ágúst og mælist verðbólga nú 10,9% á ársgrundvelli samkvæmt nýjum tölum um vísitölu neysluverðs sem Hagstofan birti í gær. Veikt gengi krónunnar veldur því að verðbólga gengur nokkuð hægar niður en spár gerðu ráð fyrir fyrr á árinu. Hækkanir á fötum og skóm, dagvörum og bensíni hafa nú mest áhrif til hækkunar á verðlagi milli mánaða en lækkun á húsnæði, bílum og húsgögnum vegur á mót. Sjá nánar mynd með breytingum á undirvísitölum milli júlí og ágúst.
Hækkun á verðlagi frá því í ágúst skýrist að mestu af verðhækkunum á fötum- og skóm sem hækka um 5,9% þegar útsöluáhrif ganga til baka og valda 0,32% hækkun vísitölunnar. Mat- og drykkjarvörur halda áfram að hækka í verði og nemur hækkunin nú um 1,2% frá fyrra mánuði sem veldur 0,17% hækkun vísitölunnar. Matvara hefur hækkað samfellt í verði síðan á fyrri hluta árs 2008 og er nú ríflega 15% dýrari en á sama tíma í fyrra skv. mælingu Hagstofunnar. Talsverður munur er á verðþróun eftir vöruflokkum. Mestar hækkanir hafa verið á ýmsum pakkavörum, kaffi, te og kakó og olíum og feitmeti sem hafa hækkað um 30-35% og ávöxtum, brauði og kornvörum og sætindi sem hafa hækkað um u.þ.b. 20% á undanförnu ári. Sjá nánar mynd af hækkunum á mat og drykkjarvörum í vísitölu neysluverðs á sl. 12 mánuðum.
Verð á bensíni og olíu hækkaði um 3,5% frá því í júlí og hefur áhrif til hækkunar á vísitölunni um 0,1%.
Líkt og undanfarna mánuði hefur húsnæðisliður vísitölunnar áhrif til lækkunar á verðbólgunni vegna lækkunar á markaðsverði íbúðarhúsnæðis og lækkunar vaxta. Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkar um 0,8% frá fyrra mánuði og hefur á síðastliðnu ári lækkað um u.þ.b. 15%. Þrátt fyrir að húsnæðisliður vísitölunnar hafi lækkað undanfarna mánuði hafa allir undirliðir hans aðrir en kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkað umtalsvert. Mest hækkun hefur orðið á viðhaldi og viðgerðum á húsnæði sem hafa hækkað um tæp 19% frá sama tíma í fyrra, þá hefur húsaleiga hækkað um ríflega 13% og rafmagn og hiti um tæplega 12% sl. ár. Sjá nánar mynd af breytingu á húsnæðislið vísitölu neysluverðs sl. 12 mánuðum.
Þá hækkar liðurinn félagsleg þjónusta í vísitölunni um 5,1% vegna hækkana á gjaldskrá leikskóla Reykjavíkur sem tók gildi sl. mánaðarmót þegar gjald fyrir vistun umfram 8 stundir var hækkað umtalsvert.
Til lækkunar á vísitölunni nú kemur einnig lækkun á verði húsganga um 3,8% frá því í júlí og lækkun á verði nýrra bíla um 4,4%. Hér er að líkindum um áhrif af tímabundnum tilboðum að ræða sem ganga munu til baka.
Frekari hækkana að vænta
Hækkanir á vörugjöldum á matvörur sem taka gildi þann 1. september nk. munuað líkindum skila sér inn í vöruverð á næstu vikum en ætla má að þær taki 1-2 mánuði að skila sér út í verðlag að fullu ef miðað er við reynsluna frá því vörugjöldum var síðast breytt á matvælum í mars 2007. Erfitt er að meta með nákvæmum hætti hver áhrif af vörugjaldabreytingunni verður á vísitölu neysluverðs en gera má ráð fyrir að breytingin gæti hækkað vísitöluna um 0,3 -,04%.
Bagalegt er fyrir neytendur að sú aukna gjaldtaka sem nú er lögð á mat- og drykkjarvörur skuli vera framkvæmd með því að leggja á vörugjöld á ný í stað þess að hækka virðisaukaskatt á ákveðnum vöruflokkum eins og upphaflega stóð til. Álagning vörugjalda er mun flóknari og ógagnsærri fyrir neytendur í alla staði og því að sama skapi erfiðara fyrir neytendur að fylgja því eftir með hvaða hætti hún skilar út í vöruverð.
Sjá nánar mynd af breytingum á undirliðum vísitölu neysluverðs á sl. 12 mánuðum.Til baka