13. ágúst 2009 14:20
Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambandsins segir það mikil vonbrigði að Seðlabankinn hafi ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum, það hafi hins vegar ekki komið mikið á óvart. „Miðað við greinargerð Seðlabankans megum við kannski þakka fyrir að vextir hafi ekki verið hækkaðir. Þetta eru engu að síður slæmar fréttir fyrir allt launafólk og fyrirtækin í landinu, vegna þess að þetta er auðvitað hin sýnilega afleiðing þess seinagangs sem er í frágangi mála á Alþingi. Þetta er ekki óbreytt ástand, þetta þýðir verri staða næsta mánuðinn,“ segir Gylfi.
Hann bendir á að Alþingi verði að klára Icesave málið sem fyrst því meðan það sé ófrágengið sé vonlítið að atvinnu- og efnahagslíf landsins hjarni við, hvað þá að gjaldmiðillinn styrkist. „Icesave er mjög vont mál fyrir okkur Íslendinga, hvora leiðina sem það fer. Okkar mat hefur verið að frágangur þess máls sé algjör lykilforsenda fyrir því að við getum haldið áfram uppbyggingunni, segir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ.
Til baka