Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
12. janúar 2007 12:18

Matvara og opinber þjónusta leiða hækkun á vísitölu neysluverðs

Verðbólga mældist 6,9% nú í janúar og hækkaði vísitala neysluverðs um 0,26% frá því í desembermánuði. Mest áhrif til hækkunar á vísitölunni nú eru vegna matar- og drykkjarvara sem hækkuðu um 2% á milli mánaða. Hækkanir á opinberri þjónustu vega einnig þungt en sá liður hækkaði um tæp 3% nú um áramót. Eins og fram hefur komið hækkuðu gjaldskrár opinberra aðila víða í upphafi árs og má þar nefna þjónustu eins og leikskóla, skóladagvist, ýmis gjöld sem innheimt eru af fasteignaeigendum eins og sorphirðu- og holræsagjöld auk annarra hækkana á almennum gjaldskrám fyrir þjónustu opinberra aðila. Þá hækkaði verð á nýjum bílum um 2,3% á milli mánaða. Útsölur á fötum og skóm sem nú standa yfir hafa áhrif til lækkunar á vísitölunni en sá liður lækkaði um ríflega 12% milli mánaða.

Athygli vekur að húsnæðisliður vísitölunnar stendur í stað á milli mánaða og þar af lækkar liðurinn reiknuð húsaleiga sem mælir breytingar á verði og vaxtakostnaði af eigin húsnæði um 0,2% en sá liður hefur hækkað stöðugt síðan í ársbyrjum 2004.

Mikil hækkun á matar- og drykkjarvörum veldur nokkrum áhyggjum og ýtir enn undir mikilvægi þess að fylgjast vel með þróun á þeim markaði á næstu mánuðum í aðdraganda aðgerða til lækkunar á matvöruverði. Ljóst er að ábyrgð opinberra aðila í hækkun vísitölunnar nú er mikil og fordæmi þeirra til annarra aðila í atvinnulífinu slæmt og ekki til þess fallið að draga úr verðbólguvæntingum almennings.



Til baka


Aðilar vinnumarkaðarins

er heiti sem er notað um samtök launafólks...