Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
12. apríl 2006 12:03

Mesta verðbólga í fjögur ár!

Síðustu tólf mánuði hefur verðbólga samkvæmt mælingu Hagstofunnar verið 5,5%. Verðbólgan er því heilum 3% stigum yfir verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Fara þarf aftur til maí 2002 til að finna viðlíka verðbólgutölur. Verðbólgan hefur nú verið yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans í tvö ár og yfir efri vikmörkum bankans í átta mánuði í röð.

Aukin verðbólga nú skýrist af miklum hækkunum á bensíni og díselolíu, nýjum bílum og húsnæði, auk þess sem áhrifa hækkandi vaxta á íbúðalánum er farið að gæta í vísitölunni. Þessu til viðbótar hækkar fatnaður nokkuð vegna útsöluloka.

Verðbólguhorfur næstu mánuði eru dökkar. Búast má við því að veiking krónunnar skili sér í auknum mæli út í verðlag á næstu mánuðum. Ekki er ljóst að hve miklu leyti veiking krónunnar leiðir til hækkunar á vöruverði þegar það er haft í huga að styrking krónunnar skilaði sér bara að hluta til lækkunar á vöruverði þegar krónan var hvað sterkust.

Verðbólgan er 5,5% og líkur á að hún aukist umtalsvert á næstu mánuðum. Seðlabankastjóri hefur sagt að til greina komi að hækka stýrivexti í 16%. Ekki hefur heyrst neitt frá ríkisstjórninni hvað hún hyggst leggja að mörkum til að hemja verðbólgu og koma á stöðugleika. Grannt verður fylgst með viðbrögðum ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans. Trúverðug efnahagsstjórn skiptir öllu máli.



Til baka


Hlutastarf

Starfsmaður telst vera í hlutastarfi ef umsamið starfshlutfall...