10. mars 2006 12:00
Vísitala neysluverðs í mars er 252,3 stig og hækkaði um 1,12% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur verðbólga samkvæmt mælingu Hagstofunnar verið 4,5%. Verðbólgan er því langt yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands og hefur verið svo í rúm tvö ár. Verðbólgan er yfir efri vikmörkum verðbólgumarkmiðsins sjöunda mánuðinn í röð. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkar meira nú en vísitalan með húsnæði, en það hefur ekki gerst í nokkurn tíma.
Aukin verðbólga nú skýrist að stærstum hluta af því að útsölum á fötum og skóm lokið er og hækkar sá liður vísitölunnar um 16,9%. Húsnæðisliður vísitölunnar hækkar einnig nokkuð eða um tæpt prósent. Að auki hækka ýmsir vöru- og þjónustuliðir í vísitölunni. Margt bendir því til þess að undirliggjandi verðbólguþrýstingur sé að aukast. Veiking krónunnar að undanförnu mun mögulega skila sér út í verðlagið á næstunni. Það er því útlit fyrir að verðbólguhorfur verði áfram óviðunandi.
Þessi staða hlýtur að vekja spurningar um efnahagsstjórnina. Er það viðunandi árangur í stjórn efnahagsmála að mati ríkisstjórnarinnar að verðbólgan sé langt yfir verðbólgumarkmiðinu 25 mánuði í röð og verðbólguhorfur framundan dökkar?
Það verður því fróðlegt að fylgjast með viðbrögðum Seðlabankans við þessum tíðindum. Næsti vaxtaákvörðunardagur bankans er 30. mars. Líkur hafa því aukist á að bankinn tilkynni um meiri vaxtahækkanir en áður hafði verið búist við.
Til baka