Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
10. febrúar 2006 11:57

Óviðunandi verðbólga

Vísitala neysluverðs mældist 4,1% í febrúar og lækkaði um 0,08% frá því í janúarmánuði.  Vísitalan mælist því yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans sem er 2,5%, tuttugasta og fjórða mánuðinn í röð.  Útsölur á fötum og skóm hafa mest áhrif til lækkunar á vísitölunni nú, en sá liður lækkaði um tæp 10% milli mánaða, en það er talsvert meiri lækkun en búist hafði verið við.  Húsnæðisliður vístölunnar hækkar um 0,7% frá fyrra mánuði sem er nokkuð minni hækkun en verið hefur undanfarna mánuði.  Verð á mat og drykkjarvörum hækkar enn, líkt og í síðasta mánuði og nemur hækkunin nú 0,5% milli mánaða. Þar hafa kjötvörur mest áhrif, en þær hækka um 1,3%, drykkjarvörur sem hækka um 1,7% og mjólkurvörur sem hækka um 0,8%.

Útsölum líkur víðast hvar nú í mánuðinum og gera má ráð fyrir að áhrif þeirra gangi til baka. Það leiðir til nokkurrar hækkunar við næstu mælingu vísitölu neysluverðs í mars. Athygli vekur að ýmsir þjónustuliðir í vísitölunni hækka nokkuð, sem bendir til þess að nokkur verðbólguþrýstingur sé undirliggjandi.  Þetta er áhyggjuefni og útlit fyrir að verðbólguhorfur verði áfram óviðunandi á næstunni. 



Til baka


Hlutabréf

er hlutdeildarskírteini í hlutafélagi. Ávinningur hlutahafa af...