Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
12. janúar 2006 11:55

Verðbólga langt yfir væntingum

Verðbólga mælist 4,4% nú í janúar sem er mun meiri hækkun en spáð hafði verið. Neysluverðsvísitalan hækkaði um 0,32% frá því í desember en spár höfðu gert ráð fyrir verðhjöðnun eða lítilsháttar hækkun.

Það sem kemur mest á óvart er að matvæli og drykkjarföng hækka mikið á milli mánaða eða um 2,0% (áhrif á vísitölu 0,3%). Greinilegt er að verðlækkanir í kjölfar verðstríðs lágvöruverslana síðasta vor eru að engu orðnar. Frá því í júlí sl. hefur dagvara hækkað um 6% en fyrstu 6 mánuðina síðasta árs lækkaði hún um 8%.

Þrátt fyrir að undanfarið hafi heldur dregið úr veltu á fasteigamarkaði er húsnæðisliðurinn enn stærsti áhrifavaldurinn í hækkun vísitölunnar. Húsnæðisliðurinn hækkaði um 2,1% (áhrif á vísitöluna eru 0,43%).

Bensín og olía hækkaði einnig nokkuð á milli mánaða eða um 2,2% (áhrif á vísitöluna 0,11%).

Vetrarútsölur, sem víða eru hafnar, draga verulega úr hækkun neysluverðsvísitölunnar að þessu sinni og lækkar verð á fötum og skóm um 10,3% (áhrif á vísitölu -0,55). Einnig lækkar gjald fyrir dagvistun barna og rafmagn.

Fastlega má gera ráð fyrir að verðbólga verði áfram vel yfir 4,0% á næstu mánuðum. Þegar útsöluáhrifin ganga til baka má búast við að verðbólga aukist enn frekar. Fróðlegt verður að fylgjast með viðbrögðum Seðlabankans við þessum verðbólgutölum. Trúlegt er að hann hækki stýrivexti á næsta vaxtaákvörðunardegi sem er 26. þessa mánaðar með tilheyrandi vandræðum fyrir útflutnings- og samkeppnisgreinarnar.



Til baka


Gengisvísitala

mælir breytingar á verði gjaldmiðils...