Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
12. desember 2005 11:52

Verðbólgan áfram yfir 4%

Verðbólga mældist 4,1% í desember og hefur hækkað um 0,36% frá því í síðasta mánuði.Vísitalan er því enn talsvert yfir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans og áfram yfir efri vikmörkum markmiðsins sem eru 4%. Mestu hækkun vísitölunnar má líkt og undanfarið rekja til hækkunar á húsnæðisliðnum sem hækkaði um 0,9% frá fyrri mánuði. Gætir þar bæði hækkunar á markaðsverði húsnæðis og hækkun á meðalvöxtum húsnæðislána. Verð á fötum og skóm hefur einnig hækkað um 2,1% og símaþjónusta um 3,5%. Þá hefur verð á tómstundavörum og leikföngum hækkað um 1,2% og mat– og drykkjarvörur hafa hækkað um 0,4% frá því í nóvember.

Þessi hækkun vísitölunnar er nokkuð meiri en spáð hafði verið og vekur athygli að liðir eins og föt, skór og leikföng, sem að lang mestum hluta eru innfluttar vörur, skuli hækka nú þegar staða krónunnar mjög sterk. Mikil hækkun á gjaldskrá Og vodafone, sem hækkaði gjaldskrá sína á GSM og fastlínuþjónustu um 7,5% að meðaltali 1. desember sl., kemur einnig fram í hækkun vísitölunnar nú.

Við næstu mælingu á vísitölu neysluverðs í janúar má búast við að fram komi ýmsar gjaldskrárhækkanir sem taka gildi um áramót. Nú þegar hafa verið boðaðar hækkanir, t.d á ábyrgðartryggingum bifreiða og mjólkurvörum, auk þess sem búast má við því nú þegar fjárhagsáætlanir sveitarfélaganna verða samþykktar, að einhverjar hækkanir verði á þjónustugjaldskrám. Á móti þessu kemur að boðuð hefur verið lækkun leikskólagjalda í Reykjavík um ármót og í janúar eru útsölur einnig í fullum gangi í flestum verslunum. Það kemur til lækkunar á vísitölunni.



Til baka


Aðildarskylda

Stjórnarskrá íslenska lýðveldisins mælir fyrir um bann við...