26. maí 2009 10:14

Verðlag hækkaði um 1,13% í maí samkvæmt nýjum tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Verðbólga á síðustu 12 mánuðum mælist nú 11,6% en hægt hefur nokkuð á verðbólguhraðanum frá því í síðasta mánuði. Verðbólga undanfarna þrjá mánuði jafngildir því að verðlag hækki um 4% á ársgrundvelli. Hækkun á verðlagi nú skýrist að mestu af hækkun á innfluttum vörum.
Mest áhrif til hækkunar á verðlagi nú hefur hækkun á bensíni og olíu um 4,9% frá því í apríl og sömuleiðis hækkun á bílum um 4,9% frá fyrra mánuði. Kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði nokkuð óvænt um 1% milli mánaða vegna hækkunar á markaðsverði húsnæðis, en rétt er að taka fram að samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni eru fáir samningar til grundvallar um þessar mundir og makaskipti algeng í viðskiptum með húsnæði.
Verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 0,8% frá því í síðasta mánuði. Þar af hækkaði verð á innfluttum mat- og drykkjarvörum um 4% en verð á búvörum lækkar um 0,9% og verð á grænmeti og öðrum innlendar matvörum breyttist lítið.
Þá hækkaði verð á flugfargjöldum til útlanda um 22,6% frá fyrra mánuði. Af öðrum liðum má nefna að verð á tóbaki hækkaði um 2,2% frá því í apríl, húsgögn og heimilisbúnaður hækkuðu um 1,2%, lyf og lækningarvörur um 1,7% og snyrting og snyrtivörur um 1,8%. Á móti vegur lækkun um 1,4% á viðhaldi og viðgerðum á húsnæði sem skýrist að líkindum af aukinni endurgreiðslu á virðisaukaskatti af vinnu viðviðhald á húsnæði.
Til baka