29. apríl 2009 10:13

Verðlag hefur hækkað um 11,9% á síðastliðnum 12 mánuðum samkvæmt nýrri mælingu Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs. Frá því í marsmánuði hækkaði verðlag um 0,45%. Lækkun á markaðsverði húsnæðis á síðustu mánuðum hefur umtalsverð áhrif til lækkunar á vísitölunni, en sé húsnæðisliðurinn tekin til hliðar, mælist verðbólga á síðustu 12 mánuðum 15,6%.
Eins og spár gera ráð fyrir gengur verðbólga nú hratt niður og sé miðað við breytingar á vísitölu neysluverðs á síðustu þremur mánuðum, jafngildir það 1,4% verðbólgu á ársgrundvelli.
Mest áhrif til hækkunar á vísitölunni milli mars og aprílmánaðar hefur verðhækkun á bensíni og díselolíu um 8,2% milli mánaða. Auk þess hækkar verð á fötum og skóm 3,2% frá fyrra mánuði. Af liðum sem hækka á milli mánaða má til viðbótar nefna að póstþjónusta hækkar um 2,9% frá fyrra mánuði, varahlutir í bíla hækka um 4,7% og raftæki hækka um 4,2%.
Á móti þessum hækkunum vegur þyngst lækkun á kostnaði vegna eigin húsnæðis um 1,6% frá því í mars sem að mestu er til komin vegna lækkunar á markaðsverði húsnæðis. Þá lækkar verðlag á mat- og drykkjarvörum um 0,7% frá fyrra mánuði. Þessu til viðbótar má nefna að verð á lyfjum og lækningavörum lækkar um 2,7% frá því í mars.
Líkt og ávallt á þessum tíma árs birtir Hagstofan nú vísitölu neysluverðs á nýjum grunni. Grunnur til útreiknings á vísitölunni byggir á niðurstöðum úr útgjaldarannsókn Hagstofunnar á árunum 2005-2007 auk þess sem notast er við ýmsar aðrar tiltækar heimildir um neyslu ss. upplýsingar um nýskráningar bifreiða, flug-og pakkaferðir auk veltutalna úr smásöluverslunum. Rétt er að taka fram að grunnskiptin sem slík hafa ekki áhrif til breytingar á vísitölunni á milli mælinga. Einnig er nú tekið tillit til breytinga á innkaupamynstri á árinu 2008 og hefur sú breyting áhrif til lækkunar á vísitölunni um 0,12%.
Til baka