Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
24. mars 2009 10:14

Verðbólgan lækkar

Verðlag lækkaði um 0,6% milli febrúar- og marsmánaðar samkvæmt nýrri mælingu Hagstofu Íslands á vísitölu neysluverðs sem birt var í morgun. Verðbólga á síðustu 12 mánuðum mælist nú 15,2% og hefur lækkað um 2,4 prósentustig frá fyrra mánuði. Verðbólga gengur því hratt niður og allt útlit fyrir að áframhald verði á þeirri þróun á næstu mánuðum. Verðlag hefur ekki lækkað jafn mikið á milli mánaða síðan í mars 1986.

Mest áhrif til breytinga á vísitölunni nú hefur lækkun á kostnaði vegna eigin húsnæðis um 5,1% milli mánaða sem er að langmestu til komin vegna lækkunar á markaðsverði húsnæðis. Þetta hefur þau áhrif að sé vísitala neysluverðs reiknuð án húsnæðis mælist 0,16% hækkun frá því í febrúar eða 19,4% hækkun á síðustu 12 mánuðum.

Fleiri liðir hafa einnig áhrif til lækkunar. Þar ber helst að nefna að verð á bensíni og olíu lækkaði um 3,1% frá því í febrúar og verð á mat- og drykkjarvörum lækkaði sömuleiðis um 0,9% milli mánaða. Þá lækka flugfargjöld til útlanda um 8,3% frá fyrra mánuði.

Til hækkunar á vísitölunni nú koma áhrif af útsölulokum á fötum og skóm sem hækka um 5,5% frá því í síðasta mánuði.

Rétt er að vekja athygli á því að Hagstofan birtir nú á heimasíðu sinni gagnleg svör við algengum spurningum sem berast um vísitölu neysluverðs m.a. um aðferðir við útreikning og gagnasöfnun.

Til baka


Kjarasamningur

eru samningar milli stéttarfélags og atvinnurekenda...