09. janúar 2009 10:33
Miðstjórn ASÍ samþykkti á fundi sínum 7. janúar starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2009.Ljóst er að í upphafi árs mun starf sambandsins mótast af endurskoðun kjarasamninga og mótun samstöðu um sameiginlega framtíðarsýn fyrir launafólk og fyrirtæki. Að öðru leyti mun starfið á árinu 2009 mótast af fjórum megin verkefnum.
Í fyrsta lagi verður lögð áhersla á að fylgja eftir stefnumörkun ársfundar varðandi umsókn um aðild að ESB, sérstaklega hvað varðar skilgreiningu á samningsmarkmiðum út frá hagsmunum launafólks. Í öðru lagi verður stefnu og áherslum ASÍ í málefnum ungs fólks sem samþykkt var á síðasta ársfundi Alþýðusambandsins fylgt frekar eftir. Í þriðja lagi fól ársfundurinn 2008 miðstjórn það verkefni að efna til viðamikillar umræðu um uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar og skipulag ASÍ og má gera ráð fyrir að það verði fyrirferðamikið viðfangsefni á nýju ári. Í fjórða lagi er gengið út frá því að megin viðfangsefni ársfundar ASÍ 2009 verði endurskoðun á áherslur verkalýðshreyfingarinnar í flestum málafokkum, í ljósi hruns fjármálakerfisins og verulegs samdráttar í tekjum hins opinbera.
Aðstæður allar í íslensku samfélagi hafa gjörbreyst á undraskömmum tíma og landslagið á að öllum líkindum eftir að breytast mikið á næstu misserum.Verkalýðshreyfingin verður því að aðlaga sig hratt að nýjum veruleika og til þess hefur hún alla burði. ASÍ og íslensk verkalýðshreyfing ætlar sér að taka virkan þátt í mótun nýs Íslands, byggt á grunngildum verkalýðshreyfingarinnar um jafnrétti, jöfnuð og réttlæti.
Hagdeild ASÍ vinnur nú að þróun öflugs hag- og verðbólgulíkans sem mun nýtast í hagspám framtíðarinnar auk fjölda rannsóknarverkefna.Má þar sem dæmi nefna greiningu á stöðu heimila út frá gögnum um eignir, skuldir og tekjur.Rannsókn á framleiðni og vinnutíma, og rannsókn á áhrifum á opnun hagkerfisins á kjarasamninga.
Félagsmáladeild stendur fyrir vinnumarkaðsrannsóknum, er með stefnumótun í menntamálum á sinni könnu, Evrópusamvinnu launafólks sem verður sífellt mikilvægari og þróun vinnumarkaðarins almennt.
Starf lögfræðideildar ASÍ árið 2009 snýst sem fyrr um þjónustu við aðildarsamtök ASÍ, umsagnir um þingmál, greinagerðir og lögfræðileg álitaefni.Skipulagsmál innan ASÍ koma einnig til kasta deildarinnar.
Fræðsludeildin heldur utan um það umfangsmikla starf sem unnið er innan Félagsmálaskóla alþýðu en þar er boðið upp á fjölda námskeiða á hverri önn fyrir fólk í atvinnulífinu. Auk þess stendur fræðsludeildin fyrir trúnaðarmannanámskeiðum og námsstefnum. Árið 2009 stendur til að ljúka þróun og framleiðslu á kennsluefni um verkalýðshreyfinguna fyrir efstu bekki grunnskólans og framhaldsskóla.
Upplýsinga- og kynningardeild stendur fyrir umfangsmikilli útgáfu á árinu, bæði rafrænt og í prentuðu formi.Má þar nefna Hagskýrslur á vori og hausti, tímaritið Vinnuna á 1. maí, Skýrslu forseta og annað efni tengt ársfundi auk þess sem útgáfa mánaðarlegs rafræns fréttabréfs hefst í febrúar.Auk þess sér kynningardeild um heimasíðu ASÍ, skipulag á opnum fundumog hefur yfirumsjón með hönnun, framleiðslu og birtingum á öllu kynningarefni Alþýðusambandsins.
Til baka