13. nóvember 2008 15:06
Íslenskt hagkerfi hefur tekið stakkaskiptum á síðustu vikum sem munu hafa umtalsverðar afleiðingar á efnahagslífið á komandi árum:
Hagdeild ASÍ gerir ráð fyrir að þegar á þessu ári dragist landsframleiðslan saman um tæpt prósent og á árinu 2009 áætlum við að landsframleiðslan dragist mikið saman eða um 8%-10%. Viðsnúningur verður hins vegar á árinu 2010 þegar hagvöxtur eykst á ný.
Mikil lækkun á gengi íslensku krónunnar hefur á síðustu mánuðum valdið mestu verðbólgu sem sést hefur í tæpa tvo áratugi. Hagdeildin gerir ráð fyrir að verðbólga muni aukast enn á næstu mánuðum og gæti farið í 25% í upphafi næsta árs en gengið síðan hratt niður. Hagdeildin áætlar að verðbólga verði komin í 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabankans undir árslok 2009.
Gera má ráð fyrir að störfum fækki mjög hratt nú í haust og á næsta ári. Það dregur úr áfallinu að stór hluti erlendra starfsmanna mun líklega hverfa heim á leið á næstunni svo og að sennilega munu margir nýta sér möguleika til frekara náms nú þegar atvinnuhorfur versna. Engu að síður gerum við ráð fyrir að atvinnuleysi verði mikið á næstu tveimur árum, eða að meðaltali 1,7% á þessu ári og á bilinu 4-5% árin 2009-2010.
Í þeirri sýn sem hér er sett fram er gert ráð fyrir að aðstoð hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og alþjóðasamfélaginu verði afgreidd fljótlega. Í framhaldinu komist gjaldeyrisviðskipti í eðlilegt horf og gengi krónunnar styrkist. Þá er gert ráð fyrir að á tímabilinu verði ráðist í byggingu álvers í Helguvík .

Sjá nánar:
Skýrslan í heild
Útdráttur á Íslensku
Summary in English
Tengt efni
Eldra efni
Til baka