27. október 2008 09:01
Ein stærstu tíðindin á nýafstöðnum ársfundi Alþýðusambands Íslands var samþykkt ályktunar þar sem stjórnvöld eru hvött til að fara í aðildarviðræður við ESB vegna hugsanlegrar inngöngu landsins í sambandið. Það vakti jafnframt athygli að af um 280 ársfundarfulltrúum sem greiddu atkvæði um ályktunina voru aðeins sex á móti. Málsgrein ályktunarinnar þar sem tekið er á Evrópumálum er þannig orðrétt:
Í öðru lagi telur Alþýðusamband Íslands afar mikilvægt að stjórnvöld fylgi lánafyrirgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins eftir með því að tryggja stöðugan gjaldmiðil til framtíðar. Það er skoðun ASÍ að yfirlýsing um að sótt verði um aðild Íslands að ESB og upptöku evru sé eina færa leiðin. Þannig verði látið á það reyna í aðildarviðræðum hvaða samningur Íslandi standi til boða og hann lagður fyrir þjóðina í atkvæðagreiðslu. ASÍ telur að yfirlýsing um að stefnt verði að aðild að evrópska myntsamstarfinu (ERM II) á næstu 2 árum myndi leggja mikilvægan grunn að því að hægt yrði í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að skapa nauðsynlegan trúverðugleika fyrir meiri festu í skráningu krónunnar á næstu árum þangað til full aðild að Evrópska peningamálasamstarfinu (EMU) og upptaka evrunnar næðist.
Ályktunina má lesa í heild sinni hér.
Til baka