06. október 2008 17:43
Í ljósi þeirra alvarlegu atburða sem nú eiga sér stað í íslensku fjármálalífi tekur Alþýðusamband Íslands undir þær áherslur ríkisstjórnarinnar að hagur almennings og fyrirtækja verði tryggður eins vel og kostur er. Alþýðusambandið lýsir sig reiðubúið til samstarfs við ríkisvaldið til að varðveita almannahagsmuni á þessum erfiðu tímum. Nú ríður á að allir leggist á eitt til að fjármálalegum stöðugleika verði náð sem fyrst.
Til baka