Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
30. september 2008 13:51

Ísland – Evrópusambandið - Evran

Starfsgreinasamband Íslands og Samtök iðnaðarins efna til ráðstefnu um mögulega aðild Íslands að ESB og upptöku evru 2. október á Hilton Reykjavík Nordica hótel - sal H kl. 13:30-16:00.

Miklar umbrotatímar eru í efnahagslífi þjóðarinnar. Gengi krónunnar stendur höllum fæti og mikil verðbólga dregur verulega úr kaupmætti. Háir vextir ógna stöðu atvinnulífsins og nokkur óvissa er frumundan. Í kjölfarið hefur umræða um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu og upptöku evru aldrei verið háværari.

Á ráðstefnunni mun Daniel Vartikari frá  Industri anställda i Norden fjalla um hvaða áhrif aðild Finnlands að Evrópusambandinu og upptaka evru hefur haft á iðnfyrirtæki og starfsfólk þeirra á síðustu árum. Industri anställda i Norden eru samtök 1,2 milljóna starfsmanna í iðnaði á Norðurlöndum.

Aðalsteinn Leifsson, lektor og forstöðumaður MBA náms í Háskólanum í Reykjavík, fjallar um hvað myndi raunverulega breytast við aðild að Evrópusambandinu í ljósi þess hve langt við erum í raun komin í Evrópusamrunanum.

Ólafur Darri Andrason, hagfræðingur ASÍ, mun fjalla ítarlega um áhrif upptöku evru á launafólk á Íslandi en ljóst er að aðlögun hagkerfisins að breyttum efnahagsaðstæðum yrði með allt öðrum hætti í myntsamstarfi en nú er.

Kristján Gunnarsson, formaður Starfsgreinasambandsins ávarpar fundinn en Jón Steindór Valdimarsson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins er fundarstjóri.

Það er tímanna tákn að Samtök iðnaðarins og Starfsgreinasambandið skuli í sameiningu fjalla um jafn mikilvægt mál og Evrópumálin eru. Samtök iðnaðarins eru stærstu og öflugustu samtök atvinnurekenda á Íslandi með um 1.200 aðildarfyrirtæki. Starfsgreinasambandið er stærsta aðildarfélag Alþýðusambands með um 50.000 (STAÐFESTA) félagsmenn. Samvinna þessara samtaka sýnir glögglega að hagsmunir fyrirtækja og launþega falla saman þegar framtíðarskipan efnahagsmála er annarsvegar.

Allir áhugamenn um Evrópu- þjóðfélagsmál eru hvattir til að mæta.

Skráning á mottaka@si.is

Til baka


Aðalkjarasamningur

er heiti sem notað er um kjarasamninga milli...