27. ágúst 2008 09:36
Verðbólga mældist 14,5% í ágústmánuði og hækkaði um 0,9% frá því í júlí samkvæmt nýjum tölum um vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Íslands birti í morgun.
Hækkun vísitölunnar er að mestu tilkomin vegna hækkana á mat- og drykkjarvörum sem hækka um 1,8% á milli mánaða. Þá hækkar verð á fötum og skóm einnig mikið eða um 4,7% frá því í júlí sem rekja má til þess að sumarútsölum er nú víðast lokið. Til lækkunar á vísitölunni nú kemur að verð á bensíni og olíu lækkaði um 3,9% á milli mánaða.
Húsnæðisliður vísitölunnar hækkar um 0,8% á milli mánaða sem kemur að mestu til vegna mikilla hækkana á viðhaldi og viðgerðum húsnæðis sem hækkar um ríflega 5% á milli mánaða. Þá hækkar húsleiga einnig nokkkuð (1%) en á móti vegur að kosnaður vegna eigin húsnæðis lækkar lítillega eða um 0,3%.
Líkt og undanfarna mánuði hækka mjög margir minni liðir vísitölunnar umtalsvert á milli mánaða. Þar ber helst að nefna að póstþjónusta hækkar um 5,6% frá því í júlí en Íslandspóstur hækkaði gjaldskrá sína sl. mánaðarmót. Liðurinn íþróttir og fjölmiðlun hækkar um tæp 2% frá því í júlí sem til er komið vegna hækkana á afnotagjöldum Ríkisútvarpsins um 5% nú í ágúst.
Við þessar aðstæður er nauðsynlegt að allir aðilar sameinist um að axla ábyrgð og haldi aftur að hækkunum á vörum og þjónustu. Það eru mikil vonbrigði að opinberir aðilar skuli nú hækka gjaldskrár sínar og kynda enn undir verðbólguna.Ríki og sveitarfélög ásamt fyrirtækjum og stofnunum á þeirra vegum verða nú að sýna samstöðu og stöðva allar hækkanir á gjaldskrám sínum.

Til baka