12. ágúst 2008 09:58
Velta í dagvöruverslun jókst um 22,2% í júlí síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra á breytilegu verðlagi og hefur vöxturinn aldrei verið meiri frá því að farið var að mæla smásöluvísitöluna árið 2001. Þetta kemur fram í úttekt Rannsóknarseturs verslunarinnar á Bifröst.Á föstu verðlagi jókst velta í dagvöruverslun um 3,2% miðað við sama mánuð í fyrra.
Verðlagsáhrif vega þyngst í þessari miklu krónutöluhækkun í veltu dagvöruverslunar, en verð á dagvöru hækkaði um 18,4% á einu ári, frá júlí í fyrra til júlí á þessu ári. Veltan jókst þó umfram þessar verðlagshækkanir.Velta í áfengissölu var rúmum 26% meiri en í fyrra. Ef miðað er við fast verðlag jókst dagvöruverslunin um rúm 3%, sala áfengis um rúm 17% og fataverslun um tæp 4%.Það vekur athygli að þessi aukning á sér stað á meðan verðbólga er í 20 ára hámarki og gengi krónunnar hefur fallið skart. Hins vegar má benda á að aðdragandi verslunarmannahelgar lenti í júlí í ár en var í ágúst í fyrra. Þá er verslun á Íslandi er orðin mun hagstæðari fyrir erlenda ferðamenn en hún var á sama tíma í fyrra.
Nánar má lesa um úttekt Rannsóknarsetursins hér.
Til baka