Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
26. júní 2008 10:25

Verðbólga í júní - eykst enn

Verðbólga mældist 12,7% í júní og hefur verðlag hækkað um 0,9% frá því í maímánuði. Verðbólga hefur ekki mælst hærri hér á landi í 18 ár og er nú 10,2% yfir verðbólgumarkmiði Seðlabankans sem er 2,5%. Verð á bensíni og olíum hækkaði um 7,2% frá því í maí og hefur líkt og í fyrra mánuði mest áhrif til hækkunar á vísitölunni nú. Verð á bensíni og olíu hefur hækkað um 30% á þessu ári.

Húsnæðisliður vísitölunnar hækkaði um 0,9% á milli mánaða sem skýrist af hækkun á húsaleigu um rúm 4% og hækkun á viðhaldi húsnæðis um 2% auk þess sem kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 0,4% frá því í maí. Hækkun á eigin húsnæði skýrist af því að óveruleg breyting mældist á markaðsverði húsnæðis á milli mánaða (-0,04%) en áhrif af hækkun vaxta voru 0,1%.

Hækkun á viðhaldi og viðgerðum á húsnæði um 2% nú bætist við tæplega 6% hækkun á þessum lið í síðasta mánuði og nemur hækkunin frá áramótum 14%.

Af breytingum á öðrum liðum vístölunn má nefna að verð á símaþjónustu hækkaði um 1,3% á milli mánaða og gistiþjónusta hækkaði um 2,4% og er það þriðja mánuðinn í röð sem sá liður vísitölunnar hækkar en frá áramótum nemur hækkunin rúmum 18%. Þá hækkaði verð á mat- og drykkjarvörum um 0,6% frá því í maí.



Til baka


Dráttarvextir

eru refsivextir sem innheimtir eru ef krafa...