19. júní 2008 17:15
Það er ástæða til að fagna tillögum ríkisstjórnarinnar sem miða að því að blása lífi í húsnæðismarkaðinn með því m.a. að auðvelda fólki aðgengi að lánsfé.Í tillögum ríkisstjórnarinnar sem kynntar voru í dag er verið að bregðast við ýmsum af þeim atriðum sem Alþýðusambandið hefur lagt áherslu á í sínum málflutningi að undanförnu.Forsetar Alþýðusambandsins ítrekuðu á fundinum að þessar aðgerðir megi ekki skerða getu Íbúðarlánasjóðs til að sinna sínu hlutverki.
Yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar má lesa hér.
Til baka