26. maí 2008 10:47
Verðbólga mældist 12,3% í maí og hækkaði vísitala neysluverðs um 1,4% frá því í apríl. Verðbólga á ársgrundvelli fór síðast yfir 12% í ágúst 1990.
Líkt og undanfarna mánuði mælast verðhækkanir á lang flestum liðum vísitölunnar. Mest áhrif til hækkunar á verðbólgunni nú hefur verð á bensíni og olíu, sem hækkaði um 5,7% frá því í síðasta mánuði og kostnaður vegna viðhalds og viðgerða húsnæðis sem hækkaði um 7,1% á milli mánaða.Þá heldur verð á mat og drykkjarvörum áfram að hækka og mældist hækkunin 1,9% á milli mánaða, hækkun á mjólkurvörum um 4%,brauði og kornvörum um 3% og grænmeti og ávöxtum um 4,5% hefur þar mest áhrif.
Af öðrum liðum má nefna að verð á innfluttum vörum hækkaði samtals um 1,7% frá því í aprílmánuði. Mikil hækkun hefur orðið á gistiþjónustu sem hækkaði um 11,3% á milli mánaða sem skýrist af því að nú er birtir nýjir verðlistar fyrir komandi sumar. Gistiþjónusta hefur á síðastliðnum 12 mánuðum hækkaðu um 12,6%.
Áhrifa af verðlækkun á íbúðarhúsnæði gætir nú í vísitölunni. Kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkaði um 0,2% frá því í apríl. Áhrifin af lækkun á markaðsverði húsnæðis (-0,15%) eru nú meiri en áhrifin af hækkun vaxta (0,11%) sem gerir það að verkum að kostnaður vegna eigin húsnæðis lækkar á milli mánaða.

Til baka