28. apríl 2008 10:24
Verðbólga mældist 11,8% í aprílmánuði og hefur vísitala neysluverðs hækkað um 3,4% frá því á mars. Hækkun á verðlagi hefur ekki mælst meiri á milli mánaða frá því í júlí 1988 og er hækkunin umtalsvert meiri en svartsýnustu spár gerðu ráð fyrir.
Verðhækkanir mælast nú á lang flestum liðum í vísitölunni en mest áhrif til hækkunar hefur hækkun á rekstrarkostnaði eigin bifreiða sem hækkar um 7,1% á milli mánaða. Þar af hækkar verð á nýjum bílum um 11% frá því í mars og verð á bensíni og olíum um 5,2%. Matur og drykkjarvörur hækka einnig umtalsvert frá fyrra mánuði eða um 6,4% og hefur 10,2% hækkun á mjólkurvörum þar mest áhrif en umtalsverð hækkun mælist í flestum flokkum mat- og drykkjarvara.
Af öðrum liðum þar sem mikil verðhækkun mælist á milli mánaða má nefna að raftæki hækka um tæplega 9% og verkfæri og tæki fyrir hús og garð hækka um 12,5%. Þá hækkar liðurinn flutningar í lofti, sem mælir verð á flugfargjöldum um rúm 13% og verð á fötum og skóm hækkar um 4% frá því í mars.
Verð á innfluttum vörum hækkaði samtals um 6,2% milli mars og aprílmánaðar og þar af hækkaði verð á innfluttum mat- og drykkjarvörum um 9,1%. Á einu ári hefur verð á mat – og drykkjarvörum hækkað um 14,6% og þar af hefur verð á innfluttum mat- og drykkjarvörum hækkað um ríflega fimmtung.

Til baka