28. mars 2008 10:08
Verðbólga mældist 8,7% í marsmánuði og hefur vísitala neysluverðs hækkað um 1,47% frá því í febrúar. Þetta er nokkuð meiri hækkun en spár gerðu ráð fyrir.
Líkt og í síðasta mánuði hefur hækkun á kostnaði við rekstur eigin bifreiðar mest áhrif til hækkunar á vísitölunni. Sá liður hækkaði um 3,1% á milli mánaða sem rekja má bæði til hækkunar á eldsneytisverði og hækkana á verði nýrra bíla.Verðlag á fötum og skóm hækkaði einnig mikið eða um 6,3% milli mánaða og kostnaður vegna eigin húsnæðis hækkaði um 1,1% sem að mestu má rekja til hækkunar vaxta.
Verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 0,4% frá því í febrúar, en á sama tíma hækkaði verð á innfluttum mat- og drykkjarvörum um 1,6%.
Þess má geta að vístala neysluverðs mælir verðlag eins og það var í annarri viku marsmánaðar sem var áður en gengi krónunnar tók mikla dýfu um miðjan mánuðinn.

Til baka