Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
26. mars 2008 15:56

Miðstjórn ASÍ ályktar um efnahagsástandið

Miðstjórn ASÍ gagnrýnir harðlega það sjálfvirka ferli verðhækkana sem fyrirtæki í verslun og þjónustu hafa boðað og þegar er hafið. Hækkana sem eru langt umfram efnisleg tilefni. Með þessu eru fyrirtæki að boða aukna álagningu og þar með að auka hagnað sinn við erfiðar aðstæður í efnahagslífinu. Vert er að minna á að í þeim kjarasamningum sem undirritaðir voru 17. febrúar sl. sýndi verkalýðshreyfingin mikla ábyrgð með hófstilltum samningum þar sem áhersla var lögð á að auka kaupmátt þeirra tekjulægstu og þeirra sem setið höfðu eftir í góðæri undanfarinna missera. Meginmarkmið samninganna var hins vegar einfalt en gríðarlega mikilvægt. Að lækka verðbólgu og treysta þannig kaupmátt launafólks. Frá þessu markmiði má ekki hvika.

Það er krafa miðstjórnar ASÍ að fyrirtækin í landinu axli með skýrum hætti ábyrgð á markmiðum kjarasamninga sem SA undirritaði fyrir þeirra hönd fyrir rúmum mánuði og leggi sitt af mörkum til að treysta þær forsendur sem þeir byggja á.

Miðstjórn ASÍ lýsir vonbrigðum sínum með aðgerðar- og úrræðaleysi stjórnvalda og telur mikilvægt að viðbragðshópur með fulltrúum launfólks, atvinnurekanda og stjórnvalda verði settur á fót til að ræða aðgerðir til úrlausnar aðsteðjandi vanda. Það verður ekki við það unað að byrðinni af efnahagsástandinu verði alfarið velt yfir á launafólk. Þá er ljóst að aukin verðbólga og þær miklu vaxtahækkanir sem orðið hafa koma sérstaklega illa við skuldsett heimili. Einkum ungs fólks sem er að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Við þessum aðstæðum verður að bregðast áður en í óefni er komið.

Til baka


Aukafélagar

eru jafnan taldir þeir sem ekki hafa formlega ...