30. mars 2012 11:21

Hagstofa Íslands gaf í dag út þjóðhagsspá að vori í ritröð sinni, Hagtíðindum. Spáin nær til áranna 2012 til 2017. Í henni er m.a. gert ráð fyrir að landsframleiðsla aukist um 2,6% á þessu ári og 2,5% 2013. Vöxt landsframleiðslu má rekja til aukinnar einkaneyslu og fjárfestingar. Samneysla stendur hins vegar því sem næst í stað þar til hún vex lítillega 2015.
Lesa meira