Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
13. mars 2008 14:20

Skráð atvinnuleysi 1% í febrúar 2008

Skráð atvinnuleysi í febrúar var 1% eða að meðaltali 1.631 manns. Þetta er svipað atvinnuleysi og í fyrra mánuði þegar það var einnig um 1% eða 1.545 manns. Miðað við sama mánuð í fyrra er hins vegar um minnkun að ræða en þá var atvinnuleysi 1,3% eða 2.037 manns.

Atvinnulausum fjölgaði örlítið meira á landsbyggðinni (48)en á höfuðborgarsvæðinu (38) og meira meðal kvenna (46) en karla (40). Líkt og undanfarna mánuði þá er atvinnuástandið einna verst á Suðurnesjum og Norðurlandi eystra. Á Suðurnesjum er atvinnuleysið 2,7% eða 282 manns.

Alls voru 626 erlendir starfsmenn skráðir inn á vinnumarkaðinn í febrúar eða 239 fleiri en í fyrra mánuði og 205 fleiri en í sama mánuði í fyrra. Af þeim sem bættust við nú koma 573 frá nýjum ríkjum evrópska efnahagssvæðisins og 53 utan þess.

Nánari greining

Tengdar fréttir
Tengd tölfræði



Til baka


Fréttalisti


Aukafélagar

eru jafnan taldir þeir sem ekki hafa formlega ...