19. október 2007 16:20
Forseti Alþýðusambandsins, Grétar Þorsteinsson, var rétt í þessu að slíta ársfundi sambandsins 2007.
Hann sleit fundinum með eftirfarandi ræðu:
Fundarstjórar - góðir félagar.
Dagskrá sjöunda ársfundar Alþýðusambands Íslands er tæmd. Þessir tveir dagar hafa verið annasamir og við höfum komist yfir að afgreiða mörg mál. Auk þess höfum við rifjað upp gömul og góð kynni – eins og vera ber á svona samkomu.
Helstu viðfangsefnin voru umræðan um kjarasamningana og það efni sem hefur verið undirbúið fyrir fundinn.
Ítarleg umræða um norræna velferðar- og vinnumarkaðsmódelið. Það má segja að við höfum verið að undirbúa okkur undir þá umfjöllun og tillögugerð á undanförnum árum.
Á síðustu ársfundum höfum við unnið að margvíslegri stefnumörkun, sem eru innlegg í og undirbúningur undir það sem við afgreiddum síðan á þessum fundi. Þannig höfum við fjallað um afmarkaða þætti eins og velferðarmál og atvinnumál og síðast ræddum við um hnattvæðinguna og hagsmuni launafólks.
Niðurstaðan er í stórum dráttum sú, að hagmunum launafólks í hnattvæðingunni sé best borgið með velferðarkerfi að norrænni fyrirmynd, auk þess sem samskipti á vinnumarkaði séu í þeim farvegi sem við höfum kallað norræna vinnumarkaðsmódelið.
Við höfum rætt um nokkur einstök atriði sem tengjast velferðarmálunum. Í því sambandi vil ég draga sérstaklega út húsnæðismálin. Það var mikil eindrægni á fundinum hvað varðar mikilvægi þess að gera átak í húsnæðismálum láglaunafólks.
Síðan ræddum við um metnaðarfullar hugmyndir um áfallatryggingasjóð og slysa, veikinda- og örorkutryggingar.
Sá afrakstur sem við förum með af þessum fundi er okkur mikilvægt leiðarljós í vinnunni framundan. Þá gildir einu hvort við erum að tala um þá vinnu sem bíður okkar á næstu vikum – þ.e. vinnan við kjarasamningana – eða hvort við erum að tala um stefnumótun til lengri tíma. Við förum vel nestuð frá fundinum.
Við höfum staðfest þann vilja ársfundarins að lögð verði áhersla á hækkun kaupmáttar og sérstaklega að lægstu launin verði hækkuð umtalsvert.
Jafnframt hefur verið staðfestur sá vilji að færa taxta að greiddu kaupi. Það er mikilvægt tæki í baráttunni gegn félagslegum undirboðum, sem hefur verið fyrirferðarmikil í starfi okkar undanfarin misseri.
Félagar,
Á ársfundinum var líka tekist á um trúnaðarstöður. Það þýðir ekki að bera sig illa undan því. Það er að mörgu leyti hraustleikamerki að takast á – og það segir okkur að það er eftirsóknarvert að sitja í forystu Alþýðusambandsins. Hugsið ykkur ef það þyrfti að þvinga fólk til að taka að sér þessi verk eins og sums staðar þekkist.
Ég þekki þá einstaklinga alla sem gáfu kost á sér og ég veit að þeir hafa allir þann félagslega þroska til að bera, að það verða engin eftirmál. Auðvitað verða alltaf einhver særindi – tímabundið – en það ristir ekki djúpt. Ég þekki þetta á eigin skinni.
Það komu fram tvö framboð í embætti varaforseta, þar sem tvær konur gáfu kost á sér – báðar mörgum góðum kostum búnar. Ég vil óska Ingjörgu R. til hamingju með endurkjörið og Signýju til hamingju með glæstan stuðning.
Að afloknum þessum kosningum vil ég taka undir það sem Signý sagði eftir að úrslit voru ljós í kosningunni um embætti varaforseta.
Hún sagði efnislega eitthvað á þá leið, - að hvernig sem niðurstaðan í kosningum er – þá beri okkur að snúa bökum saman í baráttunni fyrir bættum kjörum okkar félaga. Til þess erum við kjörin.
Félagar,
Það líður að lokum þessa fundar. Mig langar að þakka þeim félögum sem láta nú af störfum í miðstjórn fyrir samstarfið. Nú eru að hætta þau Þórunn Sveinbjörnsdóttir úr Eflingu og Pétur Sigurðsson frá Verkalýðsfélagi Vestfjarða. Þessir góðu félagar láta nú af störfum í miðstjórn eftir áratugalangt starf.
Þeir sem nú hætta sem varamenn í miðstjórn eru Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, AFLi, Sveinn Hálfdánarson, Stéttarfélagi Vesturlands og Unnur Helgadóttir sem kom frá Verslunarmannafélagi Hafnarfjarðar.
Jafnframt vil ég óska þeim sem hér hafa verið kjörnir til starfa í miðstjórn til hamingju. Þar koma inn sem nýir aðalmenn þær Signý Jóhannesdóttir og Sigurrós Kristinsdóttir. Nýir varamenn eru Ásgerður Pálsdóttir, Fanney Friðriksdóttir og Vilhjálmur Birgisson.
Að lokum vil ég þakka fundarstjórum og riturum fyrir störf sín, sem hafa gengið fram af mikilli röggsemi.
Við skulum gefa þessum félögum okkar gott klapp.
Jafnframt þakka ég starfsfólki Alþýðusambandsins og öðrum þeim sem hafa tekið þátt í að gera framkvæmd fundarins jafn góða og hún hefur verið. Hún hefur verið með miklum ágætum.
Ég vil biðja starfsfólkið að koma í salinn og gefa okkur kost á að þakka fyrir með lófaklappi.
Áður en ég sleppi ykkur alveg, vil ég þakka árfundarfulltrúum fyrir góðan ársfund og óska öllum góðrar heimferðar og heimkomu.
Sjöunda ársfundi ASÍ er slitið.
Til baka