19. október 2007 12:35
Nú fyrir stundu var Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna, kosin varaforseti ASÍ til næstu tveggja ára. Auk hennar var Signý Jóhannesdóttir formaður Verkalýðsfélagsins Vöku í framboði. Atkvæði féllu þannig að Ingibjörg fékk 163 atkvæði (60,1%) og Signý 108 atkvæði (39,9%).
Á ársfundi ASÍ síðar í dag fer fram lokaumræða um Ísland og norræna velferðarsamfélagið /vinnumarkaðsmódelið, auk þess sem kosið verður til miðstjórnar. í morgun fór fram lokaumræða um efnahags- og kjaramál.
Sjá nánar um ársfundarstörfin með því að smella hér
Til baka