Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
19. október 2007 12:35

Ingibjörg kosin varaforseti ASÍ

Nú fyrir stundu var Ingibjörg R. Guðmundsdóttir, formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna, kosin varaforseti ASÍ til næstu tveggja ára. Auk hennar var Signý Jóhannesdóttir formaður Verkalýðsfélagsins Vöku í framboði. Atkvæði féllu þannig að Ingibjörg fékk 163 atkvæði (60,1%) og Signý 108 atkvæði (39,9%).

Á ársfundi ASÍ síðar í dag fer fram lokaumræða um Ísland og norræna velferðarsamfélagið /vinnumarkaðsmódelið, auk þess sem kosið verður til miðstjórnar. í morgun fór fram lokaumræða um efnahags- og kjaramál.

Sjá nánar um ársfundarstörfin með því að smella hér

 



Til baka


Fréttalisti


EES - samningurinn

er skammstöfun fyrir Samningurinn um Evrópska Efnahagssvæðið...