Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
30. apríl 2007 12:29

Atvinnuþátttaka 82,2% á fyrsta ársfjórðungi

Samkvæmt vinnumarkaðaskönnun Hagstofu Íslands var fjöldi á vinnumarkaði 176.300 manns á fyrsta ársfjórðungi 2007 og fjölgaði um 8.800 milli ára. Þetta jafngildir því að atvinnuþátttaka sé nú 82,2% (samanborið við um 81,1% í fyrra). Fjöldi þeirra sem var á vinnumarkaði en höfðu ekki starf var 3.500 manns eða 2% vinnuaflsins (samanborið við um 2,4% í fyrra). Atvinnuleysi samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands var jafn mikið meðal karla og kvenna. Það er aftur á móti mjög misjafnt eftir aldurshópum og er langhæst í aldurshópnum 16-24 ára eða 6,9%.

Skráð atvinnuleysi samkvæmt upplýsingum Vinnumálastofnunar mælist heldur minna um þessar mundir heldur en tölurnar úr vinnumarkaðaskönnun Hagstofunnar gefa til kynna eða 1,3% (sjá útskýringar í rammagrein).

 

Atvinnuskipting þjóðarinnar

Í hefðbundinni atvinnuskiptingu þjóðarinnar er hópnum „mannfjölda á aldrinum 16-74“ ára skipt upp  í hópana „vinnuafl“ og „utan vinnuafls“.  Vinnuaflinu er svo aftur skipt í hópana „starfandi“ (þ.e. þá sem eru í vinnu) og „atvinnulausa“ (þ.e. þá sem vilja og geta unnið en hafa ekki enn fengið vinnu). Hlutfall vinnuafls af mannfjölda á aldrinum 16-74 ára er kallað „atvinnuþátttaka“ en hlutfall atvinnulausra af vinnuafli er kallað „atvinnuleysi“.

Vinnumálastofnun og Hagstofa Íslands safna upplýsingum um atvinnuástandið. Tölur Vinnumálastofnunar um fjölda atvinnulausra miðast við þá sem skráð hafa sig hjá stofnuninni og sótt um atvinnuleysisbætur; tölur Hagstofunnar miðast við könnun þar sem fólk er talið atvinnulaust ef það segist vilja og geta unnið en hefur ekki enn fengið vinnu.

Þar sem aðferðafræði stofnananna tveggja við mat á atvinnuleysi er ekki sú sama er ekki við því að búast að tölum frá þeim beri fullkomlega saman. Þó má ætla að hærri atvinnuleysistölur Hagstofunnar en Vinnumálastofnunar sé vísbending um að talsverður hluti atvinnulausra hafi annað hvort ekki rétt til atvinnuleysisbóta eða kjósi að skrá sig ekki á atvinnuleysisskrá.

 

300407atvinna

 

sjá nánar mynd



Til baka


Fréttalisti


Fæðingarorlof

er samkvæmt lögum allt að þriggja mánaða tímabil...