23. janúar 2012 12:43
Þriðjudaginn 24. janúar stendur Alþýðusamband Íslands fyrir morgunverðarfundi um húsnæðismál. Yfirskrift fundarins er: Hvað getum við lært af Dönum? - hvernig getum við lækkað húsnæðisvexti heimilanna. Aðalræðumaður fundarins er Peter Jayaswal aðstoðarframkvæmdastjóri samtaka húsnæðislánveitenda í Danmörku. Fundurinn fer fram á Hilton Reykjavík Nordica og stendur frá kl. 8-10. Fundurinn er öllum opinn.
Dagskrá fundarins má sjá hér.
Til baka