Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
19. janúar 2012 22:00

Verk vest - Krafa um efndir loforða

Fundur stjórnar og trúnaðarráðs Verk Vest haldinn 11.janúar 2012 hvetur stéttarfélög innan ASÍ til samstöðu til varnar launaþegum á Íslandi.  Vinnuveitendur hafa staðið við sitt, því er nauðsynlegt að tryggja að þær hækkanir sem samið hefur verið um verði að veruleika 1.febrúar nk. Fundurinn telur ekki rétt að kjarasamningum verði sagt upp og setja þannig frið á vinnumarkaði í uppnám, þrátt fyrir að ríkisstjórnin standi ekki við gefin loforð.  Hætta er á að slíkt stefni kjarasamningum og málefnum launþega í algjöra óvissu. 

Fundurinn lýsir fullri ábyrgð á hendur stjórnvalda komi til samningsslita og ófriðar á vinnumarkaði í kjölfar endurskoðunar forsenduákvæða kjarasamninga.  Verkefni forustumanna samninganefnda innan ASÍ og atvinnurekenda er að krefja ríkisstjórnina um efndir þeirra loforða sem þar voru gefin þann 5. maí 2011.



Til baka


Fréttalisti


Félagafrelsi

Með félagafrelsi er átt við rétt manna...