19. janúar 2012 11:06
Á fjórða ársfjórðungi 2011 voru 175.700 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 165.100 starfandi og 10.600 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 78,4% og er það lægsta hlutfall sem hefur mælst frá upphafi vinnumarkaðsrannsókna Hagstofunnar árið 1991.
Ef horft er aftur til 4. ársfjórðungs 2008 hefur fólki á vinnumarkaði fækkað um 6.700 en fjöldi fólks á vinnumarkaði var þá182.400. Atvinnuþátttaka karla á 4. ársfjórðungi 2011 var 82,7% en kvenna 74%.Á höfuðborgarsvæðinu var atvinnuþátttaka 78,8% og 77,5% utan þess.
Hlutfall starfandi mældist 73,7% og atvinnuleysi var 6%. Hvoru tveggja, atvinnulausum og starfandi, fækkaði frá fjórða ársfjórðungi 2010. Atvinnulausum fækkaði um 2.600 og starfandi um 500. Á sama tíma fjölgaði fólki utan vinnumarkaðar um 3.300. Meðalfjöldi vinnustunda var 39,3 klst., 44,5 klst. hjá þeim sem voru í fullu starfi og 22,7 klst. hjá þeim sem voru í hlutastarfi. Þetta segir okkur að vinnutími fólks virðist heldur vera að lengjast en störfum er ekki að fjölga að ráði.
Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur fækkaði um 600. Úr 3.200 eða 1,8% vinnuafls á fjórða ársfjórðungi 2010 í 2.600 eða 1,5% vinnuaflsins á fjórða ársfjórðungi 2011.
Sjá nánar hér.
Til baka