18. janúar 2012 09:36
Alþýðusamband Íslands hefur boðað til formannafundar fimmtudaginn 19. janúar til að fara yfir forsendur kjarasamninganna frá maí 2011 en fyrri endurskoðun samninganna á að vera lokið fyrir kl. 16 þann 20. janúar. Sé það mat manna að forsendur hafi staðist heldur kjarasamningurinn gildi sínu fram að næstu endurskoðun í janúar 2013.
Fram hefur komið að þær forsendur sem snúa að kaupmáttaraukningu launa, stöðugu verðlagi á samningstímanum og styrkingu krónunnar standast skoðun. Hins vegar er mikill kurr í verkalýðshreyfingunni vegna vanefnda ríkistjórnarinnar um áður gefin fyrirheit í efnahags-, atvinnu-, og félagsmálum sbr. yfirlýsingu hennar frá 5. maí 2011. Þá hleypti skattlagning ríkisstjórnarinnar á almennu lífeyrissjóðina nú um áramót verulega illu blóði í menn. Að óbreyttu þýðir hún að skerða verður lífeyrisréttindi félaga innan ASÍ á meðan yfirlýsing ríkisstjórnarinnar gerði ráð fyrir jöfnun lífeyrisréttinda upp á við í samræmi við réttindi opinberra starfsmanna.
Þegar hefur eitt af stóru félögunum innan ASÍ, AFL starfsgreinafélag, samþykkt að segja upp samningunum.
Til fundarins eru boðaðir allir formenn félaga og deilda landssambandanna innan ASÍ. Hann verður haldinn í húsakynnum Rafiðnaðarskólans að Stórhöfða 27 og hefst fundurinn kl. 13 fimmtudaginn 19. janúar.
Til baka