17. janúar 2012 13:58
Fjölmennur fundur Trúnaðarráðs VR, sem haldinn var í gærkvöld, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega fyrir vanefndir á þeim loforðum sem hún gaf út í tengslum við gerð síðustu kjarasamninga. Trúnaðarráð samþykkti áframhaldandi stuðning við kjarasamningana en tilgreinir fimm áhersluatriði gagnvart ríkisstjórninni í harðorðri yfirlýsingu þar sem aðgerða er krafist.
Miklar umræður fóru fram um framtíð kjarasamninga á fundi Trúnaðarráðs en ákvörðun um hvort segja eigi þeim upp eður ei þarf að liggja fyrir undir lok vikunnar. Margir tjáðu sig á fundinum en samþykkt var með 36 atkvæðum gegn 8, að halda áfram á þeirri braut sem mörkuð var í kjarsamningum frá því í vor.
Stefán Einar Stefánsson, formaður VR, segir það skýlausa kröfu Trúnaðarráðs að ríkisstjórnin bæti ráð sitt, eins og tilgreint er í yfirlýsingu sem samþykkt var í kvöld og er birt í heild sinni hér að neðan.
"Auk þeirra forsendna sem kjarasamningurinn tilgreinir teljum við einnig nauðsynlegt að Alþýðusambandið mótmæli vanefndum ríkisstjórnarinnar af einurð. Það er ljóst að stéttarfélögin í landinu eru tilbúin til að leggja meira á sig til að tryggja stöðugleika í landinu en ríkisstjórn Íslands gerir," segir Stefán Einar.
Yfirlýsing trúnaðarráðs VR 16. janúar 2012 er birt hér að neðan í heild sinni.
Trúnaðarráð VR lýsir miklum vonbrigðum með þær vanefndir sem orðið hafa á loforðum ríkisstjórnar Íslands, sem gefin voru í yfirlýsingu hennar frá 5. maí 2011, í tengslum við undirritun kjarasamninga. Á sama tíma og aðilar vinnumarkaðarins hafa staðið við öll ákvæði samninganna, vantar mikið upp á að ríkisstjórnin standi við loforð sín. Er það í annað skiptið sem það gerist frá því að ríkisstjórnin gekk á bak orða sinn í kjölfar hins svokallaða stöðugleikasáttmála.
Það er óþolandi að fjölmennasta stéttarfélag landsins geti ekki treyst þeim yfirlýsingum sem ríkisstjórnin gefur frá sér. Það lýsir alvarlegum trúnaðarbresti sem ekki verður unað við.
Trúnaðarráð VR krefst þess að ríkisstjórn Íslands bregðist tafarlaust við og bæti úr augljósum vanefndum sínum og að:
-
Hækkun almannatryggingabóta haldist í hendur við hækkun lægstu launa, eins og lofað var.
-
Horfið verði frá ósanngjarnri og vanhugsaðri skattlagningu á lífeyrissjóði fólksins í landinu upp á 2.800 milljónir króna, sem að öllum líkindum felur í sér brot á jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
-
Endurskoðun fari fram á tekju- og eignatengingu vaxta- og barnabóta eins og lofað hafði verið í tengslum við framlagningu fjárlagafrumvarps fyrir árið 2012.
-
Breytingar verði gerðar á lögum um opinber innkaup til þess að tryggja betur eðlilegt samkeppnisumhverfi og réttindi launafólks og komið verði í veg fyrir kennitöluflakk.
-
Hefja skuli við fyrsta tækifæri tilraunaverkefni sem feli í sér aðkomu stéttarfélaga við þjónustu við atvinnuleitendur.
Heimild: Heimasíða VR.
Til baka