16. janúar 2012 14:24
Verðlagseftirlit ASÍ kannaði breytingar á gjaldskrá fyrir skóladagvistun (dægradvöl) með hressingu og verði á hádegismat fyrir yngstu nemendur grunnskólanna. Könnunin náði til 15 fjölmennustu sveitarfélaga landsins, en gjaldskráin sem vitnað er til tekur gildi 1. febrúar nk. Mest hækkun á þriggja tíma daglegri vistun ásamt síðdegishressingu í 21 dag er í Hafnarfirði en þar hefur hún hækkað um 19%, hjá Fjarðarbyggð um 14% og Reykjavík og Sveitarfélaginu Skagafirði um 13%.
Mesta verðhækkun á hádegismat er einnig í Hafnarfirði eða 25% og Akureyri kemur þar næst á eftir með 14% hækkun. Mikill verðmunur er á heildargjaldi fyrir skóladagvistun með hressingu og hádegismat milli sveitarfélaganna. Lægsta mánaðargjaldið fyrir skóladagvistun m.v. 63 tíma á mánuði, hressingu og hádegismat í heilan mánuð er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði en þar kostar þessi þjónusta 20.181 kr./mán. Hæsta gjaldið er hins vegar hjá Garðabæ 32.044 kr./mán. Verðmunurinn er 11.863 kr. eða 59%. Öll sveitarfélögin sem skoðuð voru hafa hækkað hjá sér gjaldskrá á þessari þjónustu á milli ára. Ekki er tekið tillit til seðilgjalda eða annarra innheimtugjalda, sem leggjast ofan á gjaldið.

Mánaðargjald fyrir skóladagvistun með hressingu
Fjórtán sveitarfélög af þeim fimmtán sem skoðuð voru hafa hækkað hjá sér gjaldskrána fyrir skóladagvistun með hressingu á milli ára. Lægsta mánaðargjaldið er hjá Fljótdalshéraði 12.810 kr./mán. en hæsta gjaldið er hjá Garðabæ 23.056 kr./mán. verðmunurinn er 10.246 kr. eða 80%. Mesta hækkun á gjaldskrá er hjá Hafnarfjarðakaupstað um 19% eða úr 17.199 kr./mán. í 20.490 kr./mán. Fjarðarbyggð hækkar gjaldskrána næst mest eða úr 14.238 kr./mán. í 16.170 kr./mán. eða um 14%. Reykjavík og Sveitarfélagið Skagafjörður koma þar á eftir með 13% hækkun. Óbreytt gjaldskrá er aðeins á einum stað, Seltjarnarnesi.

Verð fyrir hádegismat í grunnskólum
Tólf sveitarfélög af þeim fimmtán sem skoðuð voru hafa hækkað hjá sér gjald fyrir hádegismat milli ára. Tekið er mið af áskrift ekki stökum máltíðum. Mesta hækkunin er í Hafnarfirði en þar hefur gjald fyrir staka máltíð hækkað úr 300 kr. í 375 kr. eða um 25%. Akureyri hefur hækkað gjaldið úr 307 kr. í 350 kr. eða um 14%. Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavíkurborg og Sveitarfélagið Skagafjörður hafa öll hækkað gjaldið um 13%. Mjög misjafnt er hvað foreldrar þurfa að greiða fyrir hádegismatinn, en munurinn er allt að 67% á milli sveitarfélaganna. Hæsta gjaldið er hjá Fjarðarbyggð en þar kostar máltíðin 435 kr. Lægsta gjaldið er hjá Sveitarfélaginu Skagafirði á 261 kr. Óbreytt gjaldskrá er á milli ára hjá Garðabæ, Fljótdalshéraði og Ísafjarðabæ.
Heildarkostnaður foreldra fyrir skóladagvistun með hressingu og skólamáltíð
Þegar skoðaður er heildarkostnaður fyrir skóladagvistun með hressingu og hádegismat í skólum landsins er Sveitarfélagið Skagafjörður með lægsta verðið 20.181 kr./mán. en hæsta verðið er hjá Garðabæ 32.044 kr./mán. en það er 11.863 kr. verðmunur á mánuði eða 59%. Á meðfylgjandi mynd má sjá að heildarkostnaðurinn hækkar hjá öllum sveitafélögunum. Mest í Hafnarfirði, úr 23.499 kr./mán. í 28.365 kr./mán. sem er hækkun um 4.866 kr. á mánuði eða 21%. Næst mesta hækkunin er hjá Reykjavík, Sveitarfélaginu Skagafirði og Akureyri en þar hækkar gjaldskráin um 13% og hjá Mosfellsbæ um 12%. Minnsta heildarhækkunin er á Ísafirði og Seltjarnarnesi eða 1%.

Systkinaafslættir hjá sveitarfélögunum
Systkinaafslættir eru misjafnir eftir sveitarfélögum. Afslátturinn fyrir annað barn er frá 25% upp í 75% og afslátturinn fyrir þriðja barnið er 60% upp í 100%. Reykjavík er með hæsta systkinaafsláttinn, en þar er veittur 75% afsláttur með öðru barni og 100% með þriðja. Ekki er gefinn afsláttur af fæði.
Sjá nánar í meðfylgjandi töflu.
Mjög misjafnt er á milli sveitarfélaganna hvernig gjaldskráin er uppbyggð, til dæmis er hámarksgjald, mánaðargjald, aukagjald fyrir gæslu á starfsdögum, aukagjald fyrir að hjálpa til með heimalærdóm og skráningargjald. Einnig er hádegismatur seldur í formi mánaðargjalds, klippikorts eða sem stakar máltíðir. En til að einfalda samanburð milli sveitarfélaganna miðar verðlagseftirlitið samanburð sinn við mánaðargjald miðað við 21 dag og vistun í þrjá tíma á dag með hressingu, samtals 63 tíma á mánuði og hádegismat í áskrift.
Einungis er um verðsamanburð að ræða, ekki er lagt mat á gæði þjónustunnar.
Til baka