13. janúar 2012 14:57
Atvinnuleysi í desember mældist 7,3% og hefur hækkað um 0,2% frá nóvembermánuði. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Vinnumálastofnunar um stöðuna á vinnumarkaði. Atvinnuleysi hjá körlum er 7,2% og 7,4% hjá konum. Atvinnuleysið er 8,0% á höfuðborgarsvæðinu en 6,1% á landsbyggðinni. Svæðisbundið atvinnuleysi á Suðurnesjum er 12,8% og er sem fyrr langhæst þar. Á höfuðborgarsvæðinu voru 8205 skráðir atvinnulausir og 1373 á Suðurnesjum sem þýðir að 81% allra atvinnulausra eru í þessum landshlutum.
Á sama tíma í fyrra var atvinnuleysið 8,0% þannig að það hefur minnkað marktækt milli ára eða um 0,7%. Sem fyrr koma yngstu árgangarnir verst út. Þannig eru mjög margir atvinnulausir á aldrinum 20-35 ára eða 5573 einstaklingar á landinu öllu sem er um helmingur allra atvinnulausra. Um 50% allra atvinnulausra eða 6415 hafa eingöngu grunnskólapróf. Á súluritinu sést hvernig atvinnuleysið hefur þróast milli mánuða.

Áhyggjuefni er að langtímaatvinnuleysið hefur fest sig í sessi. Þeir sem hafa verið lengur en eitt ár atvinnulausir eru nú 4526. Alls voru 2034 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok desember og langstærstur hluti þeirra var frá Póllandi eða 57%.
Fróðlegt er einnig að skoða tölur eftir atvinnugreinum en klárlega má merkja viðsnúning í sumum greinum. Þannig var fjöldi atvinnulausra í verslun 2038 í desember 2011 en 2339 á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysið var 1584 í mannvirkjagerð í desember 2011 en 2032 á sama tíma 2010. Auk þess hefur ástandið meðal þeirra sem hafa iðnnám að baki batnað milli ára. Nú eru 1632 þeirra atvinnulausir en voru 1941 fyrir ári. Ástandið hefur ekkert skánað meðal einstaklinga með háskólapróf, þannig eru 2065 atvinnulausir í dag en þeir vor 2037 í fyrra.
Til baka