13. janúar 2012 09:49
Ný könnun ESB sýnir að ungt fólk verður fyrir mestum neikvæðum áhrifum vegna fjármálakreppunnar. Aldrei fyrr hefur svo fátt ungt fólk verið starfandi og atvinnuleysi heldur áfram að aukast meðal þess.
Í júlí 2011 var atvinnuleysi meðal ungs fólks í Evrópusambandslöndunum 20,7%. Á fyrsta ársfjórðungi ársins 2011 var atvinnuþátttaka ungs fólks 32,9 prósent og hefur aldrei verið minni í sögu Evrópu. Í flestum ríkjum eru fleiri ungir atvinnulausir karlar en konur. Þetta á sérstaklega við um Norðurlöndin og Bretlandi en í Suður-Evrópu snýst þetta við.
Skýrsluna í heild má lesa hér.
Til baka