12. janúar 2012 14:46
Skýrsla Sameinuðu þjóðanna um ástand og horfur í efnahagsmálum fyrir árið 2012 sem kemur út 17. janúar, varar við hættu á frekari efnahagslegum samdrætti. Skýrslan bendir á viðvarandi hátt atvinnuleysi, kreppu Evrunnar og alvarlegan niðurskurð sem helstu þætti þeirrar hættu sem heimurinn stendur frammi fyrir.
Gert er ráð fyrir minni hagvexti samanborið við fyrri áætlanir og að árið 2012 geti skorið úr um framtíðarhorfur fyrir heiminn allan takist Evrópu og Bandaríkjunum ekki að vinna bug á atvinnuleysi og minnka opinberar skuldir. Bandaríkin glími enn við 9% atvinnuleysi, lítinn vöxt kaupmáttar og óleystan húsnæðisvanda skuldsetts almennings. Í skýrslunni er talið að Kína og Indland muni hins vegna betur. Einnig kemur fram að atvinnuleysi hafi að jafnaði verið 8.3% á árinu 2011 en var 5.8% áður en kreppunnar fór að gæta á árinu 2007. Þriðjungur þeirra sem eru án vinnu hafa verið atvinnulausir í meira en eitt ár.
Skýrsluna fréttatilkynningu SÞ hér.
Til baka