Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
10. janúar 2012 11:21

Góður fundur um gjaldmiðilsmál

ASÍ stóð fyrir morgunverðarfundi í dag um gjaldmiðilsmál. Yfirskrift fundarins var: Íslenska krónan – bölvun eða blessun? Fjögur áhugaverð erindi voru flutt og síðan opnað fyrir fyrirspurnir úr sal að þeim loknum. Þrátt fyrir slæmt veður og erfiða færð var húsfyllir á fundinum.

Ræðumenn voru þeir Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ sem fjallaði um agaleysi í hagstjórn og óstöðugan gjaldmiðil, Arnór Sighvatsson aðstoðarbankastjóri Seðlabanka Íslands ræddi um valkosti Íslands í gjaldmiðilsmálum, Friðrik Már Baldursson deildarforseti Viðskiptadeildar HR talaði um munuinn á því að taka upp gjaldmiðil einhliða eða taka upp evru með aðild að ESB og Ragnar Árnason prófessor við HÍ fjallaði um kosti sveigjanlegs gjaldmiðils.

Upptaka frá fundinum verður aðgengileg á heimasíðu ASÍ frá og með miðvikudeginum 11. janúar.



Til baka


Fréttalisti


Aðalkjarasamningur

er heiti sem notað er um kjarasamninga milli...