04. janúar 2012 10:31
Alþýðusamband Íslands hefur boðað til formannafundar fimmtudaginn 5. janúar til að fara yfir forsendur kjarasamninganna frá því í vor en fyrstu endurskoðun samninganna á að vera lokið 20. janúar nk. Sé það mat manna að forsendur hafi staðist heldur kjarasamningurinn gildi sínu fram að næstu endurskoðun í janúar 2013.
Meðal helstu forsenda kjarasamningsins er að kaupmáttur launa aukist, að verðlag haldist stöðugt á samningstímanum, að gengi krónunnar styrkist marktækt og að stjórnvöld standi við gefin fyrirheit í efnahags-, atvinnu-, og félagsmálum sbr. yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 5. maí 201.
Til fundarins eru boðaðir allir formenn félaga og deilda landssambandanna innan ASÍ. Hann verður haldinn í húsakynnum Rafiðnaðarskólans að Stórhöfða og hefst kl. 10:30.
Til baka