03. janúar 2012 09:42
Mánudaginn 19. desember fékk Kvennaathvarfið heimsókn frá Fulltrúaráði verkalýðsfélaganna í Reykjavík sem veitti Samtökum um kvennaathvarf styrk að upphæð kr. 500.000. Rekstrarstýra Kvennaathvarfsins veitti styrknum viðtöku en hann mun nýtast vel til frekari uppbyggingar barnastarfs í athvarfinu.
Aðventan var ánægjuleg og viðburðarrík í Kvennaathvarfinu og hefur hlýhugur í garð athvarfsins og íbúa þess verið áberandi sem aldrei fyrr, að sögn Sigþrúðar Guðmundsdóttur framkvæmdastýru. Góðvinir athvarfsins hafa bankað upp á með ýmsar gjafir og sjálfboðna þjónustu og góðar gjafir hafa borist frá einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum. Heimsókn Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna í Reykjavík er dæmi um þennan hlýhug.

Til baka