Leturstærð
Leturgerð
Bakgrunnur
Leturlitur
Stafabil
Orðabil
Línubil
Litur sérhljóða


 
21. desember 2011 12:35

Verðbólga eykst lítillega í desember

Verðlag hækkaði um 0,36% milli nóvember og desembermánaðar samkvæmt nýrri mælingu á vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Íslands birti í morgun. Verðbólga á ársgrundvelli er nú 5,3% og hefur verðbólga aukist lítillega frá fyrri mánuði en í nóvember mældist hún 5,2%.

Verð á mat og drykkjarvörum hækkuðu um 1,7% frá fyrri mánuði og eru áhrifin á vísitöluna 0,25%. Hækkun varð á nær öllum undirliðum matar- og drykkjavara að undanskildum olíu og feitmeti. Mest varð hækkunin á ávöxtum en þeir hækkuðu um 5,2%. Áhrifa veikari krónu á innflutning og árstíðabundnar sveiflur á verði ávaxta eru helstu skýringar á hækkandi matvælaverði en einnig eru vísbendingar um að hækkanir á innlendu framleiðsluverði sé að skila sér út í verðlagi.

Af öðrum liðum má nefna að flugfargjöld hækkuðu nokkuð í desember eða um 12,1% (0,12% vísitöluáhrif). Húsnæðisliður vísitölunnar hækkaði um 0,3% (0,08% vísitöluáhrif) og má að mestu rekja þá hækkun til verðhækkana á íbúðaverði sem hefur hækkað um 8% síðustu 12 mánuði.

Verðlækkanir á húsgögnum og húsbúnaði vógu lítillega upp má móti verðhækkunum en húsgögn lækkuðu um 0,4% á milli mánaða (-0,02% vísitöluáhrif).



Til baka


Fréttalisti


Félagafrelsi

Með félagafrelsi er átt við rétt manna...